Sælir félagar. Ég reikna með því að við höldum vestur á leið þetta árið. Kannanir hafa sýnt að það sem ferðamönnum, bæði innlendum og erlendum finnst áberandi eftirsóknarverðast á Vestfjörðum er landslagið og náttúran. Annað sem fólk nefnir er kyrrðin, friðsældin og fámennið og tilfinningin að vera einn með sjálfum sér og upplifa eitthvað ósnortið. Ég er búinn að setja saman hér hugmynd af ágætis mótorhjólaferð um vestfirðina að ég held.Allavega hugmynd, svo eigum við örugglega eftir að slípa hana eitthvað til.En þessi hjólatúr er um 1200km
Dagur 1. (Svört leið) Keflavík-Stykkishólmur
Eins og í fyrra hittumst við á bensínstöðinni á fitjum að morgni -------------- tönkum hjólin og fáum okkur kaffi áður en við leggjum í hann kl 10:00 vestur. Ég væri til í að taka Hvalfjörðinn, skemmtileg leið mikið af beygjum og svonaJ Áfram höldum við til Ólavsvík þaðan á Grundafjörð,já við tökum allt Snæfellsnesið og höfum bara gaman af því og endum á Stykkishólm sem er fyrsti áfangastaður. Það hefur komið til tals að menn taki með sér tjald og tjaldi ef það er stemnig fyrir því
Mér líst bara vel á það,það er hægt að fá sér tjald sem fer nánast ekkert fyrir og kosta mjög lítið. Munið eftir TAL-tjöldunum,þú kastar því upp í loftið og það er búið að rétta úr sér áður en það lendir á jörðinni
Þetta tekur álíka mikið pláss og góður kaffibrúsi.
Þessi dagur gerir 309km
--------------------------------------------
Dagur 2. býður upp á tvo möguleika þ.e.a.s tvær leiðir
Dagur 2.(Gul leið) Stykkishómur-Ísafjörður
Þá tökum við ferjuna Baldur yfir Breiðafjörðinn með viðkomu í Flatey. Siglingartíminn er um 1og 1/2 klst.Ég man ekki alveg hvað farið kostaði en mig minnir að það hafi verið um 3000kr. En eftir Flatey siglum við til Brjánslæk, þar sem dallurinn landar okkur á land og við höldum áfram á vit ævintýranna. Á Patreksfirði er virkur bifhjólaklúbbur sem heitir Þeysir.Þeir hafa verið að taka á móti hjólurum og hjólað með þeim eitthvað áleiðis,að Bíldudal.Það gæti verið gaman að hitta þennan. Áfram höldum við síðan til Þingeyrar og Flateyri og þaðan til Ísafjarðar sem er Áfangastaður nr.2 Ég veit að það eru fullt af gistiheimilum og farfuglaheimilum á þessum slóðum og það er alltaf eitthvað laust ef menn finna fyrir þreytu og vilja ná góðri hvíld í rúmi þá er það alltaf fyrir hendi.
Þessi dagur gerir 229km
--------------------------------------
Dagur 2.(Græn leið) Stykkishómur-Ísafjörður
Hérna legg ég til að við leggjum í hann frekar snemma upp úr kl 9:30 Hann er frekar langur þessi dagur en samt ekkert ýkja eða 391km.Þá leggjum við af stað frá Stykkishólmi og keyrum Hvammsjörð út í enda og til Búðardal og þaðan í átt að Reykhólum. Á Reykhólum er mikið um Erni sem vert er að skoða því þessi kvikindi sér maður nánast aldrei,það væri gaman að sjá einn fljúga beint yfir okkur
.Frá Reykhólum höldum við leiðinni í átt að Þingeyri og Flateyri sem leiðir okkur síðan á áfangastaðinn Ísafjörð þar sem við dveljum aðra nóttina.
Þessi dagur gerir 391km
--------------------------------------
Dagur 3.(Rauð leið) Ísafjörður-Hólmavík
Ísafjörður-Hólmavík en þá hjólum við alla vestfirðinna,það verður gaman.Við erum að tala um 224km á góðum laugardegi, það tekur því nú varla að starta hjólunum fyrir þessa örfáu km, nei smá djók. Við eigum bara góðann laugardag í Hólmavík,það hlýtur að vera eitthver trúbator eða vestfirskar yndismeyjar að syngja á “the local pub”sem geta stitt okkur stundirnarJ annars erum við svo helvíti skemmtilegir að við getum bara skemmt okkur sjálfir.Eða hjólað eitthvað þarna í kring,um að gera að skoða pleisið maður er nú ekki þarna aðra hvora helgi
Þessi dagur gerir 224km
-----------------------------------------
Dagur 4.(Blá leið) Hólmavík-Keflavík
Á Sunnudaginn þegar við vöknum eftir pöbbaröltið
á Hólmavík höldum við heim á leið það eru 321km til Keflavíkur gegnum göngin, s.s mikið hjólað og þá er mikið gaman.



Ef þið hafið við eitthverju að bæta þá endilega komið því á framfæri í athugasemnd.
Kv Siggi Helgi